16.03.1938
Efri deild: 26. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

68. mál, gerðardómur í togarakaupdeilu

Forseti (EÁrna):

Ég leyfi mér að bera upp þá till., að umr. fari þannig fram, að ræðutímanum verði skipt jafnt milli allra þingflokka og að ræður verði takmarkaðar. Hefi ég hugsað mér, að hver flokkur hefði 15 mín. til umráða í fyrstu umferð, 5 mín. í annari umferð og svo aftur 5 mín. í 3. umferð.