08.04.1938
Efri deild: 44. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

80. mál, útflutningur á kjöti

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

L. þessi, sem hér er farið fram á að framlengja, um útflutning á kjöti til Noregs og Englands, voru fyrst látin gilda til júlímánaðar 1934, en síðan hafa þau árlega verið framlengd, og nú liggur hér fyrir frv. um framlengingu þeirra l., borið fram af hv. landbn. Nd., og var hún sammála um að samþ. frv. Hingað er frv. svo komið frá hv. Nd.. og erum við landbnm. allir sammála um, að sjálfsagt sé að mæla með því, að frv. þetta verði samþ. óbreytt nú hér á þessu þingi.