11.04.1938
Neðri deild: 46. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (491)

58. mál, mat á matjessíld og skozkverkaðri síld

*Frsm. (Finnur Jónsson):

Þetta frv. er komið frá Ed. og var borið þar fram af mönnum úr Alþfl. og Sjálfstfl., eftir beiðni síldarútflutningsn. Hv. sjútvn. hefir haft frv. til athugunar og leggur til, að það verði samþ. N. vill lögbjóða mat á matjessíld og skozkverkaðri síld, svo að við getum haldið mörkuðum okkar í samkeppni við aðrar þjóðir. Hinsvegar áskilja einstakir menn sér rétt til að koma fram með brtt.

Ég tel málið mikið nauðsynjamál og óska, að því verði vísað áfram til 3. umr.