13.04.1938
Efri deild: 48. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (553)

73. mál, hrafntinna

*Frsm. meiri hl. (Bjarni Snæbjörnsson):

Þar sem búið er nú að taka þetta mál svo oft út af dagskrá og frestað hefir verið á þann hátt umr. um það, finnst mér, að það mætti nú samþ. það til 3. umr. og taka svo til athugunar þetta erindi frá húsameistara ríkisins milli 2. og 3. umr. Mér finnst ekkert á móti þeirri meðferð málsins til þess að flýta fyrir afgreiðslu þess frá þinginu.