25.04.1938
Efri deild: 53. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (697)

12. mál, skemmtanaskattur

*Jóhann Jósefsson:

Ég hafði haft á orði, að ég mundi taka brtt. mína aftur, ef hv. n. vildi taka efni hennar til athugunar á milli umr. Hv. frsm. hefir nú lofað að gera það, en mér hefir brugðizt það, að hv. 3. landsk. tæki sína till. aftur, og af því að mín till. er brtt. við hans till., verður hún líka að koma til atkv.