01.04.1938
Neðri deild: 38. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (874)

69. mál, togaraútgerðarnefnd

*Finnur Jónsson:

Þar sem svo er áliðið þings, að ekki er líklegt, að þeirri rannsókn, sem hér er um að ræða, verði lokið nægjanlega snemma til þess, að hægt verði að leggja niðurstöður n. fyrir þetta þing, segi ég nei.