25.04.1938
Efri deild: 53. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í B-deild Alþingistíðinda. (887)

69. mál, togaraútgerðarnefnd

*Brynjólfur Bjarnason:

Að ég einmitt nefndi þessar þrjár starfsgreinar, kemur til af því, að ég áleit, að þær skiptu mestu máli í þessu sambandi. Að öðru leyti þakka ég hv. 3. landsk. fyrir undirtektir hans við þetta mál og vil verða við þeim tilmælum hans að taka till. aftur til 3. umr., og býst ég þá fastlega við, að um þetta geti orðið fullt samkomulag.