06.04.1938
Efri deild: 42. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (993)

46. mál, samvinnufélög

Forseti (EÁrna):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hv. 1. landsk. við brtt. á þskj. 184, sem hljóðar þannig:

„Aftan við 2. tölulið bætist: enda eigi félagið kost á viðskiptum við SÍS“.

Þessi brtt. er skrifleg og fram komin á fundinum, og þarf því afbrigði til þess, að hún megi komast að.