06.11.1939
Neðri deild: 53. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (1194)

95. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi

Finnur Jónsson:

Ég vil í sambandi við þetta mál taka fram f. h. Alþfl., að þar sem ófriðurinn hefir ruglað allar áætlanir manna í þessu máli, og þar sem vegna ófriðarástandsins hefir skapazt dýrtíð langt umfram það, sem líkur voru til, að skapast myndi vegna l. um gengisskráningarbreytinguna, þá mun Alþfl., annaðhvort í n. eða við síðari umr., leggja fram till. til leiðréttingar á kjörum verkamanna og annara lægri launþega.