17.04.1939
Neðri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í B-deild Alþingistíðinda. (120)

6. mál, lax- og silungsveiði

Forseti (JörB) :

Hér hefir komið fram brtt. frá hv. 7. landsk. við 2. lið brtt. á þskj. 141, sem er á þá leið, að við hann bætist: „né nær árósum en 500 metra, ef um á er að ræða, sem lax gengur í úr sjó.“ Það þarf tvennskonar afbrigði til þess að þessi brtt. megi koma til umr., þar sem hún er of seint fram komin og í öðru lagi skrifleg.