22.12.1939
Sameinað þing: 19. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)

161. mál, fjáraukalög 1938

Fjmrh. (Jakob Möller):

Þetta frv. er lagt fram fyrir Alþingi samkv. fyrirmælum stjórnarskrárinnar og eins og venja er til. Í aths. er gerð grein fyrir flestum þeim umframgreiðslum, sem frv. felur í sér, og er ekki ástæða til að ræða þær sérstaklega að sinni. Ég vil mælast til þess, að frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og fjvn.