04.12.1939
Efri deild: 75. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (1348)

106. mál, Sláturfélag Suðurlands

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta fer fram á að veita Sláturfélagi Suðurlands heimild til þess að innkalla stofnbréf sín. Allshn. hefir haft málið til athugunar og telur réttlátt að veita þessa heimild. Leggur nefndin því til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.