21.11.1939
Efri deild: 65. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)

113. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla af stríðsáhættuþóknun

Forseti (EÁrna) :

Útbýtt er í deildinni brtt. við þetta frv., á þskj. 310. Þá hefir mér og borizt skrifl. brtt. frá hv. 2. landsk. þm., svo hljóðandi: [sjá þskj. 320].

Þar sem brtt. þessar eru of seint fram komnar, og hin síðari auk þess skrifl., verður að veita afbrigði til þess að þær geti komið til umr. og atkvgr. á fundinum.