30.11.1939
Neðri deild: 72. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
110. mál, vegalagabreyting
Bergur Jónsson:
Ég þakka fyrir hönd okkar flm. þessa frv. samgmn. fyrir undirtektir hennar. Hún hefir að vísu lagt til, að nokkru lengra verði gengið í að breyta vegal. en okkur flm. þótti fært að ganga. Hinsvegar erum við algerlega sammála samgmn., að það sé fyllsta réttlæti, sem farið er fram á í nál. á þskj. 343.