04.12.1939
Neðri deild: 74. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)
124. mál, hafnargerð í Stykkishólmi
Frsm. (Bergur Jónsson):
Eins og sést af nál. á þskj. 350, leggur nefndin til, að frv. verði samþ. með mjög smávægilegum breytingum, sem eingöngu eru til þess að samræma það við gildandi reglur og önnur hafnarlög. Helzt er athyglisverð 2. brtt., við 7. gr., þar sem ákveðið er, að hafnarnefnd skuli kosin að afstöðnum hverjum reglulegum sveitarstjórnarkosningum, öll í einu lagi, í stað þess; sem frv. gerir ráð fyrir, að nefndarmenn gangi úr einn á ári, fyrstu árin eftir hlutkesti, og árlega sé kosinn maður í skarðið. Sjútvn. þótti rétt að samræma þetta við hreppsnefndarkosningarnar.