22.12.1939
Neðri deild: 90. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)

149. mál, héraðsskólar

*Thor Thors:

Hér er komin fram brtt. á þskj. 550 um að fjölga héraðsskólunum og bæta við einum skóla á Suðurlandi. Ég get verið því hlynntur, að þeim sé fjölgað, en þá vil ég jafnframt, að tekið verði tillit til fleiri héraða en hér er gert ráð fyrir. Það hefir lengi verið öflug hreyfing um það á Snæfellsnesi, að þar rísi upp héraðsskóli, og vil ég leyfa mér að bera fram skriflega brtt. þess efnis, að einum slíkum skóla verði bætt við þar.