08.11.1939
Efri deild: 56. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)

22. mál, tollskrá

Forseti (EÁrna) :

Það hefir nú verið felld till. um að fresta umr. og vísa málinu til n. aftur, en með því að einn hv. dm., sem er fjarstaddur, hefir óskað eftir að geta haft tækifæri til að vera við afgreiðslu málsins, þá vil ég verða við tilmælum hans og fresta umr. um málið nú í dag. Er því umr. frestað og málið tekið út af dagskrá.