23.12.1939
Neðri deild: 93. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (2104)

167. mál, útvarpsrekstur ríkisins

*Einar Olgeirsson:

Ég vil ekki tefja umr. að þessu sinni, en vil lýsa því yfir, að ég mun gera aths. við þetta frv. við næstu umr. Með tilliti til þess, að það er Þorláksmessukvöld, mun ég ekki lýsa afstöðu minni til þessa máls að sinni. umr. (atkvgr.) frestað.