27.12.1939
Efri deild: 94. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (2182)

170. mál, Landsbanki Íslands

*Frsm. (Sigurjón A. Ólafsson):

Herra forseti! Þetta mál er flutt, eins og grg. ber með sér, að tilmælum form. landsbankan. N. hefir ekki enn komizt til að athuga málið, enda þótt hún flytji frv., og bera það saman við gildandi l. um sama efni.

Ég vildi gjarnan, að n. gæti fengið tækifæri til þess að athuga frv. milli umr. Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta, en vil leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og til allshn.