30.03.1939
Neðri deild: 30. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í B-deild Alþingistíðinda. (244)
64. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
*Frsm. (Thor Thors):
Þetta frv., sem allshn. ber fram, er samið af nefnd, sem atvmrh. skipaði síðastl. haust til að athuga þessi efni. Með frv. fylgir grg. þeirrar n., og vil ég vísa til hennar. Allshn. vildi koma þessu frv. á framfæri nú, en mun gera við það nokkrar brtt. síðar. Aðalefni þess er, að ráðherra skuli heimilt að skipa einn trúnaðarmann í hverjum landshluta til að hafa á hendi eftirlit sveitarstjórnarmálefna fyrir hönd atvmrn. og undir yfirstjórn þess. Málefnum ýmissa sveitar- og bæjarfélaga er nú svo komið, að skerpa þarf eftirlit með þeim, og ómögulegt fyrir einn mann, sem situr í Reykjavík, að anna því eða fylgjast svo stöðugt með á hverjum stað sem þörf er á. Veitir ekki af manni í hverjum fjórðungi.
Meðal verkefna þeirra manna telur nefndin að taka þátt í að semja fjárhagsáætlanir illa stæðra bæjar- og sveitarfélaga, að gæta þess, að bæjar- og sveitarfélög, sem njóta atvinnubótafjár eða stuðnings úr jöfnunarsjóði eða frá ríkinu, noti fullkomlega sína eigin tekjustofna, og vera ráðgefandi um úthlutun og notkun atvinnubótafjár á hverjum stað og um byggðarleyfi eða flutning fólks milli staða, ef að því ráði yrði horfið. — Verkefnið er að minnsta kosti nóg.
Þó að allshn. sé frv. samþykk í höfuðatriði þess, telur hún nauðsynlegt, að einn maður fastur sé til þess í stjórnarráðinu að stjórna eftirlitinu í þessum málum og hafa aðalábyrgð þess. Hann á að samræma þær reglur, sem farið er eftir um allt landið, og ráða sem mestu um, hvernig þeim er hagað. Við teljum nauðsynlegt, að einn og sami starfsmaður sé látinn gæta þessa samræmis, og ekki aðeins ár frá ári, heldur jafnvel kjörtímabil eftir kjörtímabil, þó að stjórnarskipti og aðrar breytingar verði. Það er augljóst mál, að eigi aðhald að koma í þessum efnum, verður það að koma að ofan, og stjórnarráðið er rétti aðilinn.
Ég leyfi mér að óska þess, að málinu verði vísað til 2. umr.