04.01.1940
Efri deild: 104. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í B-deild Alþingistíðinda. (2489)

118. mál, framfærslulög

*Forseti (EÁrna):

Ég vil geta þess út af aths. hv. 1. þm. N.-M., að það er rétt, að orðið „sýslufélag“ hefir fallið niður í prentun í einum stað í bráðabirgðaákvæðunum undir tölulið H. Síðar í frv. kemur þetta orð fyrir, sem sýnir, að það á að standa þarna. Mun verða séð um, að þetta verði leiðrétt, þegar frv. verður prentað upp, og þarf það því ekki að koma að sök.