22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1101 í B-deild Alþingistíðinda. (2497)
143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti! Mér skilst, að málið muni fá þá meðferð að verða tekið af dagskrá. Einn hlut finnst mér vanta til þess, að hægt sé að skapa sér skoðun á því. Hve mikill atvinnuauki má búast við, að skapist þarna? Námsmannafjöldann, sem til álita kemur, get ég farið nærri um. En meðan spurningu minni er ósvarað, get ég ekki vitað, hvort ¾ er rétt hlutfall eða ekki.