23.12.1939
Efri deild: 92. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (2535)
164. mál, fiskimálanefnd
*Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason) ; Ég hefi litlu við það að bæta, sem tekið er fram í nál. meiri hl. Það var náttúrlega vitanlegt, að með því að vísa málinu til nefndar mundi ekki fást mikil lausn á því fram yfir það, sem komið var og menn hafa átt kost á að kynna sér í sambandi við annað mál, sem hér hefir verið til umræðu. Það kom fram, að menn voru búnir að mynda sér fasta skoðun um frv., og er þess vegna ekki þörf á að fara inn á efni frv. að þessu sinni, og geri ég það ekki nema sérstakt tilefni gefist, en eins og nál. ber með sér, mælir meiri hl. með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.