03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (2559)
164. mál, fiskimálanefnd
*Emil Jónsson:
Ég hefi ekki gert mikið að því að tefja störf þingsins með ræðuhöldum, en ég held, að ég geti ekki stillt mig um að segja nokkur orð um þetta mál.
Ég hefi verið að brjóta heilann um það, hvað vaki fyrir hæstv. atvmrh. eða öðrum, sem að frv. standa, með flutningi þess. Ég hefi ekki getað fundið við þessu neitt fullnægjandi svar. Ég hefi ekki getað fundið neitt eðlilegt svar og vildi þess vegna mjög mælast til þess, að hæstv. atvmrh. vildi skýra fyrir mér og öðrum, hver meining hans er með flutningi frv.
Þegar ég heyrði fyrst á þetta frv. minnzt í fjvn., þá var það rökstutt með þeim hætti, að þetta væri gert í sparnaðarskyni, að fækka nm. úr 7 niður í 3. Það væri gert til þess að lækka útgjöld þau, sem n. hefði í för með sér. Á þeim eina grundvelli var málið flutt þar.
Ég minntist á það þá lítillega í n. og eins minntist ég á það við hæstv. atvmrh., að þetta er að sjálfsögðu fjarri lagi, því það er hvergi ákveðið í l., hvað þessir menn skuli hafa í kaup. Það er á valdi ráðh. að ákveða kaup þeirra. Ég skýrði honum frá, að hann gæti ákveðið, að n. starfaði fyrir minna kaup en nú. Ég veit það líka af viðtali við ýmsa nm., að þeir væru vel fáanlegir til að lækka eitthvað sitt kaup, ef það væri það sem mestu máli skipti.
Ég veit það sjálfur persónulega, að það er ekki þetta, enda hygg ég, að hæstv. atvmrh. muni heldur ekki bera það fram sem ástæðu, að þetta sé gert í sparnaðarskyni. Um þá ástæðu þarf því ekki að ræða, þó hún hafi verið nefnd í sambandi við flutning frv. upphaflega í fjvn.
Þá hefir mér dottið í hug önnur ástæða, sem væri kannske skiljanleg, en hún er sú, að það vill nú svo til, að ég er fulltrúi í þessari nefnd fyrir ríkisstj. eða fyrir atvmrh. Ég er ekki tilnefndur í nefndina af núverandi atvmrh., heldur af þeim manni, sem var atvmrh. næstsíðast á undan honum, þm. Seyðf. Hann valdi mig að einhverju leyti vegna þess, að hann faldi, að ég sem alþýðuflokksmaður myndi að því leyti betur gæta óska hans í n. en aðrir. Mér fyndist það þess vegna eðlilegt sjónarmið hjá hæstv. núv. atvmrh., að ég væri kannske ekki réttur fulltrúi þar fyrir hann, þar sem ég er annarar pólitískrar skoðunar. Þess vegna bauð ég honum að draga mig til baka úr n., þar sem ég væri ekki hans fulltrúi í þeim skilningi, sem ég áðan nefndi. Ég bauð honum, að hann gæti valið sér nýjan fulltrúa.
Eins og allir líklega muna, var löggjöfin um fiskimálanefnd sett af Alþfl. og Framsfl. og mjög á móti vilja Sjálfstfl., eða margra ráðandi manna þar, að því er virtist og fram hefir komið hér á þingi þá og síðan. Því er ekki að leyna, að Sjálfstfl. hefir notað öll tækifæri til að reyna að fetta fingur út í störf n., líklega af því, að honum finnst þetta vera mál Alþfl., og Framsfl. og þess vegna sjálfsagður skotspónn fyrir sig. Atlögur hans að n. hafa allar, að mér virðist, miðað að því að fá hana lagða niður og starfsemi hennar lagða undir S. Í. F. Þetta hefir svo oft komið hér fyrir, að ekki þarf að rekja dæmin. Nú hefir aftur skapazt um n. meiri ró. Í henni er ekki til neinn pólitískur meiri hluti. Hv. þdm. vita, hvernig hún er skipuð, og bankarnir tveir eiga t. d. sinn manninn hvor, Alþsamb. einn, Fiskifél. Ísl. einn o. s. frv. Sumir þessir menn hafa ekki á sér neinn pólitískan lít, og starfsemin fer alls ekki eftir pólitískum línum. Hugsunin með n. var í upphafi sú, að þarna kæmu saman fulltrúar ýmissa félaga og stofnana, sem hefðu margt til málanna að leggja faglega, án pólitískra sjónarmiða. Hinn pólitíski órói fyrstu árin stafaði að miklu leyti af því, að í formannssæti var Héðinn Valdimarsson, sem mig grunar, að pólitísku skeytunum hafi aðallega verið beint að, vegna stjórnmálaþátttöku hans utan n. Eftir kosningar 1937 tók við formennskunni nýr maður, sem ég veit ekki, hverrar skoðunar er í pólitík. Ég veit ekki, hvort hæstv. atvmrh. er kunnugra um það. Hann mun aldrei hafa látið það í ljós, að hann fylgdi neinum flokki. En störf sín hefir hann rækt þannig, að um n. hefir skapazt meiri vinnufriður.
Störf og allar aðgerðir n. hafa vaxið. Útflutningur um hendur hennar hefir aukizt upp í rálega 3 millj. kr. á þessu ári, og getur aukizt meira. Ég get mér til um það, að þetta aukna gengi n. og góði árangur hafi orðið hæstv. ráðh. og flokki hans þyrnir í augum og að þar þurfi einhverju að breyta til að draga úr árangrinum. Þessi breyting, sem hér er lagt til, miðar líka greinilega í þá átt. Nú er ekkert líklegra en að í n. verði valdir 3 menn, sem hafa fyrst og fremst þann kost og þá skyldu að vera góðir umboðsmenn fyrir sinn flokk. En ég hygg að þetta eigi aftur að verða til þess, eftir að tekin hafi verið upp að nýju hin pólitíska krítik á n. eins og á formannstíma HV., og átyllur fáist til að taka störfin af henni og leggja hana svo niður. Ég hefi athugað þetta frv., mér þykir slæmt að verða að segja það, að ég hefi ekki fundið í því neinn tilgang nema þennan. Það mundi gleðja mig, ef hæstv. atvmrh. gæti fært fyrir því önnur rök. En sú yfirlýsing, sem hann gaf hv. þm. Ísaf., að hann væri alls ekki á þessari stundu tilbúinn að gefa yfirlýsingu um það, hvernig hann mundi beita valdi sínu yfir n., styrkti einmitt grun minn um, að það geti verið til fleiri en einn máti að meðhöndla þessa nefnd á, að dómi ráðherrans. Hefði hann talið starf n. gott, var ekki um annað að gera en lýsa yfir, að hann mundi styrkja hana til þess að starfa eins og hún hefir gert. Nú hefir hann ekki viljað gera það. Ég get skilið þetta, og það því fremur, sem ég býst við, að ráðh. þyki hægara að taka afstöðu, þegar þessi 3 manna nefnd er búin að starfa eitt ár og allt er komið í sama pólitíska blossa sem áður var. — Ég skal ekki orðlengja um þetta, því að áliðið er kvölds, en ég hefi ekki tafið d. með löngum ræðum í vetur, og mér fannst ég ekki geta annað en látið þm. heyra, hvað mig grunar um tilgang þessa frv.