04.01.1940
Neðri deild: 102. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (2577)
164. mál, fiskimálanefnd
*Einar Olgeirsson:
Ég ræddi þetta mál allýtarlega við 1. umr., og það sýndi sig á því, sem fram hefir komið við 2. og 3. umr., að sú skýring, sem ég gaf í þeirri ræðu á baráttunni um fiskimálan. allt frá 1935, hefir fengið staðfestingu, sérstaklega í ræðu hæstv. atvmrh. og hv. 6 landsk.
Það er verið með þessu frv., sem er flutt eftir kröfu atvmrh., að stiga næsta og seinasta skrefið í þá átt að afnema það, sem þm. Alþfl. og Framsfl. komu á viðvíkjandi fiskimálan. á þinginu 1933, og hv. þm. Seyðf., sem þá var atvmrh., byrjaði að rífa niður með bráðabirgðal. rétt eftir að þinginu lauk. Undanhaldið, sem var þá byrjað viðvíkjandi Kveldúlfi, er nú að taka á sig hina síðustu mynd.
Hæstv. atvmrh. hefir ekki dregið dul á það í yfirlýsingum sínum, að hann vill afnema fiskimálan. alveg, og þessi fækkun nm. niður í 3 er síðasta skrefið áður en sú athöfn fer fram.
Það var að heyra á ræðu hv. 6. landsk., að Alþfl. sjái nú, hvernig þarna er komið og hvert undanhaldið undan Kveldúlfi leiðir. Framsfl. hefir hjálpað Kveldúlfi til að koma þessu máli í gegn, og ég skil vel, að Alþfl. snúi reiði sinni gegn Framsfl. og hóti honum öllu illu. Það er samt ekki rétt í því sambandi að gleyma, hver það er, sem stjórnað hefir árásinni. Þetta er allt eðlileg afleiðing þess að 2 síðastl. ár hafa vinstri flokkarnir, í stað þess að standa saman gegn Kveldúlfi, stöðugt látið undan síga og hafa nú fullkomnað það undanhald pólitískt. Ég ræddi þetta ýtarlega við 1. umr. og vildi nú aðeins láta þessi fáu orð falla áður en frv. er endanlega afgr., sérstaklega vegna þess, að mín skilgreining þá fékk svo fullkomna staðfestingu í ræðunum, sem haldnar voru nú.
Viðvíkjandi till. hv. 6. landsk. um mjólkursölun., þá held ég, að margar n. þyrfti að taka fyrir í því sambandi, og mætti áreiðanlega setja saman heilan lagabálk um eintómar n., sem mætti steypa saman og fella niður, en ég held, að það sé mál, sem þingið ætti að ræða sérstaklega fyrir utan það, sem hér liggur fyrir um fiskimálan., sem eitt út af fyrir sig skiptir mjög miklu máli vegna þeirrar baráttu, sem háð hefir verið um það áður, og einnig vegna þess, að þessi till., sem hér liggur fyrir, er táknandi um horfurnar í útgerðarmálum hér á Íslandi.
Ætla ég svo ekki að orðlengja þetta frekar.