28.02.1939
Neðri deild: 9. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (2586)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Forsrh., sem hefir utanríkismálin með höndum, er ekki viðstaddur, og verður því ekki hægt að svara þessari fyrirspurn endanlega að svo stöddu. Mér er ekki kunnugt um, hvaða reglu hefir verið fylgt í þessum efnum, en mér þykir líklegt, að þessu muni hagað á svipaðan hátt og venja er til, án þess þó að þetta hafi nokkuð komið til umr. á stjórnarfundi. Hv. 3. þm. Reykv. verður því að bíða eftir endanlegu svari frá forsrh.