17.03.1939
Neðri deild: 21. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (2593)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Atvmrh. (Skúli Guðmundason):
Út af fyrri fyrirspurninni, sem hv. 3. þm. Reykv. bar fram, skal ég geta þess, að hann mun hafa sent atvinnumálaráðuneytinu á sínum tíma kæru yfir úrskurði, sem kveðinn var upp af hv. forseta bæjarstj. Reykjavíkur á bæjarstjórnarfundi um það, eftir hvaða reglu varamenn ættu að taka sæti í bæjarstj. í forföllum aðalmanna. Hv. 3. þm. Reykv. hefir skotið þessu máli til umsagnar forseta bæjarstj., og á sínum tíma barst umsögn hv. forseta bæjarstj. um þetta mál. En ráðuneytinu hefir ekki unnizt tími til að afgr. þetta mál ennþá. Að svo stöddu get ég ekki sagt annað en að þetta mál verður afgr. eins og önnur mál, þegar lokið verður við að athuga það.
En um síðari fyrirspurn hv. 3. þm. Reykv. er það að segja, að ef ég man rétt, hefir það verið tekið fram í tilkynningu frá póst- og símamálastjóra, að þess væri óskað, að á vissum tíma dagsins væru símtöl við þm. látin sitja fyrir öðrum, og mönnum sé gert kunnugt, hvenær unnt sé að ná í þm. Ég sé ekki, að með þessum ráðstöfunum sé á nokkurn hátt gert torveldara að ná tali af þm. en þó að engar slíkar ákvarðanir hefðu verið gerðar.