17.03.1939
Neðri deild: 21. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1291 í B-deild Alþingistíðinda. (2599)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
*Einar Olgeirsson:
Ég sé nú á þessum umr., að hæstv. forsrh. vill gjarnan sem mest fara inn á aðrar brautir heldur en að ræða beinlínis um þá heimsókn Þjóðverja, sem stendur nú fyrir dyrum, — vill fremur tala um það, hvort eigi að leyfa almennt rannsóknir á auðæfum landsins o. þ. l. Hann minntist í því sambandi á þessa málmrannsókn á Vestfjörðum. En ég spurði, hvort ætti að leyfa rannsóknarleiðangrum eins og þessum þýzka að fara hér um landið. Þeir hafa hingað til gert það leyfislaust, og það er yfirgangur og frekja sem við eigum ekki að þola sem sjálfstæð þjóð.
Nú vitum við, að hvert einasta atriði, sem nú er framkvæmt af þýzku stjórninni, hvort sem það eiga að heita rannsóknir eða vísindi eða hvað annað, sem það nú heitir, er gert í hernaðarlegum tilgangi. Mér dettur ekki í hug. að hæstv. forsrh. ætli í alvöru að leggja það að jöfnu, þó Englendingar komi hingað og æski leyfis ríkisstj. til að rannsaka málma á Vestfjörðum, við það, að sendimenn þýzku stjórnarinnar fara hér um landið til að rannsaka það og myndatökumenn þýzka herforingjaráðsins framkvæmi hér á landi rannsóknir, án þess að spyrja ríkisstj. nokkuð um það. Við vitum, að það, sem þýzka ríkisstjórnin gerir í þessum efnum, hefir beina hernaðarlega þýðingu fyrir hana. En hinsvegar það, sem kemur til greina í þessu sambandi af hálfu Englendinga, rannsóknir þeirra hér, er hlutur, sem hefir aðeins atvinnulega þýðingu fyrir Íslendinga.
Af því að ég býst ekki við, að lengri umr. verði um þetta mál nú. lýsi ég því sem minni skoðun, að ég álít óhjákvæmilegt, að Alþ. taki þessa væntanlegu heimsókn Þjóðverja til alvarlegrar umr. og að hæstv. ríkisstj. lýsi því yfir á Alþ., hvort sem hún vill fyrir lokuðum dyrum eða ekki, hvað hún geri við þær kröfur, sem gerðar verða til hennar um lendingarstaðina. Ég býst við, að ríkisstj. eigi ekki að gera út um það að Alþ. forspurðu.
Hæstv. forsrh. talaði um Þjóðverja sem „vinveitta“ þjóð. Ég skal sízt verða til þess að leggja eitt orð á móti þýzku þjóðinni. Ég ber varla meiri virðingu fyrir nokkurri þjóð en þýzku þjóðinni. En við vitum af fregnum síðustu daga, hvað „vinátta“ þýzku ríkisstjórnarinnar, sem nú situr, þýðir. Við vildum varla nokkur okkar, að sú „vinátta“, sem hæstv. forsrh. talaði um, snerist upp í þá „vernd“ gagnvart okkur Íslendingum, sem skeð hefir á nokkuð átakanlegan hátt gagnvart öðrum þjóðum.
Það kemur ekki til með að verða lengi, sem við höfum viðskipti við Þjóðverja. Sú stjórnmálastefna, sem nú er í Þýzkalandi, sér um, að þau verði slæm fyrir okkur, og þau verða varla nema 2–3 ár í viðbót.