20.03.1939
Neðri deild: 22. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (2605)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
*Héðinn Valdimarsson:
Hæstv. forsrh. virðist ekki skilja það, að allir þm. eigi að hafa sama rétt. Hann vill sem sé gefa þrem stærstu flokkunum á þingi meiri rétt en öðrum. Ég veit ekki, hvaða stoð hann hefir fyrir því í l. eða stjórnarskrá. Og formlega hefir nú aðeins utanríkismálan. tök á að fylgjast með þessum málum.
Þá blandar hæstv. forsrh. utanríkismálunum saman við umsóknir um leyfi til námugraftar og utanríkislán, sem annað ætti að heyra undir atvmrh. og hitt undir fjmrh., en kemur ekkert við því, sem hér er um að ræða. Hann segist ennfremur hafa verið að leitast við að lagfæra stíl blaðanna. En getur hann búizt við, að blöð, sem ekki eru hans flokksblöð, skrifi eins og hann vill, og það jafnvel án þess að hann vilji gefa þeim nauðsynlega vitneskju um utanríkismálin? Ef slíkum upplýsingum er haldið fyrir þinginu og blöðunum, hlýtur sú spurning að vakna, hvort hér sé ekki eitthvað á ferðinni, sem þarf að leyna landslýðinn, hvort hér sé ekki óhreint mjöl í pokanum.