23.03.1939
Neðri deild: 25. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (2606)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
*Ólafur Thors:
Ég leyfi mér að óska þess, að hæstv. forseti leyfi mér að gera hér fyrirspurn til hæstv. forsrh., utan dagskrár. Ég sé að þess er getið í einu blaði bæjarins í dag, að samkv. skeyti frá Íslandi sé birt í dönsku blaði, Arbejderbladet, svo hljóðandi fyrirsögn: „Forsætisráðherra hefir á Alþingi staðfest, að Þýzkaland krefjist leyfis til að koma upp flugvöllum á Íslandi. Íslendingar krefjast að þessum kröfum Hitlers verði vísað á bug. Væntanleg Íslandskoma „Emdens“ á sennilega að hræða Íslendinga til þess að verða við kröfunum.“
Ég þarf náttúrlega ekki að leiða rök að því hér á Alþingi, að slíkur fréttaburður er beinlínis framinn í þeim tilgangi að skaða íslenzka hagsmuni. Ég hygg, að ég segi rétt frá, þegar ég staðhæfi, að ekkert í þeim umr., sem fram hafa farið hér á Alþingi nýverið, þegar rætt var um þetta mál, hafi gefið tilefni til þess að hafa það eftir forsrh., sem þar er eftir honum haft. Ég lít svo á, að hér sé farið vísvitandi rangt með ummæli hæstv. forsrh., í því skyni að skaða íslenzka hagsmuni.
Ef þetta er rétt hjá mér, þá lyfi ég mér að spyrja hæstv. forsrh., hvað hann hafi hugsað sér að gera til þess að draga úr þeim skaðvænlegu áhrifum, sem slík starfsemi nú þegar hefir haft fyrir Ísland og íslenzka hagsmuni, og hvaða vald hann telur sig hafa til þess að framkvæma þann vilja, sem hann kann að hafa í þessum efnum. Ég veit ekki, hvað langt þessi svikastarfsemi hefir gengið, en það hefir nýlega verið birt grein í ensku blaði, „Manehester Guardian“, sem miðar að því sama, að skaða íslenzka hagsmuni. Slíkir menn í þjóðfélaginn, sem senda svona skeyti, eru landráðamenn. og það verður að binda fyrir munninn á slíkum skaðræðisgripum. Það verður að taka fyrir það með góðu — eða þá illu —, að menn fremji slíka landráðastarfsemi.