22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (2643)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Erlendur Þorsteinsson:

Ég vil fyrir mitt leyti sem einn af fjhn. mönnum mótmæla því, ef á að hafa óvenjulegan og óþinglegan hraða á þessum málum. Ég hefi gerzt meðflm. þeirra ásamt öðrum fjhn. mönnum að beiðni ríkisstj., með það fyrir augum, að þessi mál færu til n., til þess að þau yrðu athuguð þar nánar. Við höfum ekkert athugað þessi mál, aðeins borið þau fram. Ég fyrir mitt leyti gerði því ráð fyrir, að þau færu til þeirra n., sem að réttu lagi eiga að athuga þau.