08.12.1939
Efri deild: 79. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2786)

152. mál, bráðabirgðaráðstafanir

Forseti (EÁrna):

Út af þeim till., sem fram hafa komið um n., vil ég aðeins vekja athygli á því, að allshn. hefir nú þegar tvö stórmál til meðferðar, og teldi ég því heppilegra að vísa þessu máli til fjhn., þar sem það í eðli sinn getur eins heyrt undir starfssvið hennar, og sú n. er ekki eins störfum hlaðin. Annars sker d. vitanlega úr því, og mun ég fyrst bera undir atkv. deildarinnar tillögu um að vísa málinu til fjárhagsnefndar.