03.04.1939
Neðri deild: 33. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (282)

69. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi

*Forseti (JörB) :

Ég hefi hingað til leyft ræðumönnum að hafa ótakmarkaðan ræðutíma í þessu máli. Því að mér þótti rétt, að öll sjónarmið, sem þm. hafa á þessu máli, kæmu glöggt fram, en þar sem umr. um þetta frv. hafa nú staðið í 6 klst., mun ég hér eftir takmarka ræðutíma þm., svo að engum verði leyft að tala lengur en í 6 mínútur.