04.12.1939
Efri deild: 75. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (2934)

78. mál, tekjuskattur og eignarskattur af vaxtafé

Bernharð Stefánsson:

Ég geri ekki ráð fyrir því þótt málinu sé frestað nú til morguns, að þá sé nokkurrar frekari athugunar á því að vænta fyrir þann tíma. Ég segi fyrir mig. að ég er bundinn við störf á fundum síðari hluta dagsins í dag. Ég vildi aðeins láta vita af þessu. E. t. v. getur hv. 5. landsk. gert sínar athuganir á málinu, en menn mega ekki vænta þess, að ég geti sinnt því í dag.