18.12.1939
Neðri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í C-deild Alþingistíðinda. (3094)

51. mál, jöfnunarsjóður aflahluta

*Frsm. (Sigurður Kristjánsson) :

Ef ætti að fresta þessu máli hér í d. samkv. forsendum hv. þm. V.-Húnv., þá eru öll líkindi til, að það dagi uppi, því að fjárlögin verða ekki afgr. fyrr en komið er að þinglausnum. En annars er hv. þm. V.-Húnv-. svo vel viti borinn, að hann veit, að ef Alþingi samþ. lög, er hafa einhvern tilkostnað í för með sér, þá verður hann greiddur, hvort sem hann er í till. fjvn. eða ekki.