06.11.1939
Neðri deild: 53. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (3153)
93. mál, skattfrelsi h/f Eimskipafélags Íslands
*Atvmrh. (Ólafur Thors) :
Ég ætla aðeins að segja það, út af því, sem hv. þm. V.-Húnv. sagði, að ég er ekki sammála honum um það, að stjórn Eimskipafélagsins hafi látið undir höfuð leggjast að fullnægja skilyrðum, sem sett voru í bréfi dags. 3. nóv. 1938. Það er svo fjarri því, að ég sé honum sammála um þetta, að ég tel sannara, að hún hafi leyst fram úr því, sem þar var talið nokkuð velta á um stuðning ríkisstj., og það miklu betur en nokkur gat gert sér í hugarlund, þegar þessi hv. þm. sem þáv. atvmrh. setti skilyrðin. Ég tel ekki heldur, að Eimskipafélagsstj. hafi unnið til neinna saka fyrir það, þótt hún hafi ekki sjálf beinlínis falað við gjaldeyrisnefnd um þetta. Ég hygg, að hún hafi haldið, að með því að fullnægja settum skilyrðum ráðuneytisins væri það nægilegt og við ríkisstj. eina um það að tala.
Eins og ég sagði áðan, ætla ég ekki að taka upp deilur um þetta atriði, heldur vildi ég aðeins láta skoðun mína á þessu koma hér fram, sérstaklega ef svo kynni að fara, að málið kæmi ekki á dagskrá hér aftur, vegna breyttra kringumstæðna, en um það geri ég ráð fyrir, að Eimskipafélagsstj. fái vitneskju innan fárra daga. þar sem hún býst við að fá endanleg svör innan skamms um mikilsverð atriði frá þeim, sem ætla að byggja skipið.
Út af því, sem hv. þm. Ísaf. sagði, vil ég aðeins segja það, að mér er kunnugt um, að það er rétt, sem hann segir, að þau skip, sem Eimskipafélagið hefir nú í förum, eru ekki eins hentug og æskilegt væri til þessara ferða. Mér er það einnig kunnugt, að Eimskipafélagið hefir haft til athugunar kaup á stærra vöruflutningaskipi, en það liggur ekki fyrir neitt endanlegt í því máli. En það veldur nokkrum áhyggjum í því sambandi, hvort nokkur not muni verða fyrir þau skip annarstaðar, ef ferðir þeirra skipa, sem nú sigla til Ameríku, falla niður. Svo er einnig á það að líta, að verð á skipum hefir margfaldazt síðan í ágústmánuði. Og það er ekki nema eðlilegt, þegar menn vita ekki meira en við vitum um það, hve lengi ófriðurinn kunni að standa, að menn hiki við að kaupa gömul skip og óhentug við margföldu verði. Ég veit ekki til þess, að Eimskipafélagið hafi getað fengið nein skip, sem það hefir haft augastað á eða fullnægi þeirri þörf, sem hér um ræðir.
Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta, en óska að málinu verði vísað til fjhn. að þessari umr. lokinni.