14.12.1939
Neðri deild: 83. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í C-deild Alþingistíðinda. (3244)

125. mál, rafveitulánasjóður

Forseti (JörB):

Eins og menn vita, hefir mál þetta verið nokkrum sinnum á dagskrá, en jafnan verið tekið af dagskrá, til þess að hægt væri að athuga það nánar, og hefir þó enn ekki unnizt tími til þess. Fyrr við þessa umr. bar hv. 6. þm. Reykv. fram rökst. dagskrá; hefi ég farið fram á það við hann, að hann tæki hana aftur til 3. umr., og varð hann við þeim tilmælum. — Ég get þessa, ef það mætti verða til þess að stytta umr. nú. (PHalld: Ég hefði að sjálfsögðu fallið frá orðinu, ef forseti hefði látið þessa getið fyrr). Ég lét þessa ekki getið fyrr því ég hafði ekki þá talað við hv. 6. þm. Reykv. Ég er því alls ekki að hafa á móti því, þótt hv. 4. þm. Reykv. héldi sína ræðu, enda var það sjálfsagt.