14.12.1939
Neðri deild: 83. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í C-deild Alþingistíðinda. (3246)

125. mál, rafveitulánasjóður

*Pétur Ottesen:

Ég hafði ætlað mér að bera fram nokkrar aths. við þetta frv., en þar sem það hefir komið fram hjá hæstv. forseta, að málið muni verða tekið til nýrrar athugunar til 3. umr., og hin rökstudda dagskrá, sem fram var borin, tekin aftur þangað til, fell ég frá umr. um málið nú. Ég hafði hugsað mér að bera fram rökst. dagskrá, en mun láta það niður falla nú og sjá til, hvernig málið skipast til 3. umr.