03.01.1940
Efri deild: 100. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (3317)
144. mál, eyðing svartbaks og hrafns
*Páll Zóphóníasson:
Ég get ekki orðið við þeirri áskorun hv. 5. landsk. þm., að taka aftur till. mína. Ég held, að úr því fuglafriðunarlögin liggja til endurskoðunar, þá sé engin ástæða til þess að taka undan þessa 2 fugla og ófriða þá með sérstökum l. Það er ekki langt þar til næsta Alþingi kemur saman, og það er ekki nema eðlilegt, að ríkisstj. fái þetta frv. til meðferðar, og mun hún þá að líkindum senda það til sömu n. og hefir fuglafriðunarlögin til athugunar. Ég held því fast við mína fyrri till. um að málinu verði vísað til ríkisstj.