17.04.1939
Neðri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (332)

70. mál, lendingarbætur á Eyrarbakka

*Frsm. (Bergur Jónsson) :

Þetta frv. er í raun og veru bara leiðrétting á l. nr. 45 frá 1931, um lendingarbætur á Eyrarbakka, og gengur í þá átt, að hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps verði fengin í hendur stjórn þeirra mála, sem í l. ræðir um, eins og tíðkast annarstaðar. Sjútvn. er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.