16.12.1939
Neðri deild: 85. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í C-deild Alþingistíðinda. (3334)

158. mál, mæðiveikin

Skúli Guðmundsson:

Ég er að mestu leyti samþykkur þeim brtt., sem landbn. ber hér fram á l. um varnir gegn mæðiveikinni, en vil þó mælast til þess, að landbn. taki frv. til frekari athugunar fyrir 2. umr., einkum að því er snertir c-lið 3. gr., sem gerir ráð fyrir viðbót við 19. gr. laganna. Hygg ég, að sú viðbót sé að mestu leyti endurtekning á 2. málsgr. 22. gr. l., sem nú gilda, því að þar er ákvæði um uppeldisstyrk. Fer illa á, að sú grein standi óbreytt, ef 3. gr. hins nýja frv. verður samþ. Auk þess hefði ég viljað fá tækifæri til þess að koma á framfæri hjá hv. landbn. brtt. við l. til viðbótar.