26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (3445)
92. mál, vöruflutningaskip til Ameríkuferða
*Frsm. (Jónas Jónsson) :
Út af ræðu hæstv. atvmrh. skal ég taka það fram, að ég hefði ekki treyst mér að bera fram þessa till., ef það væri ekki vegna vöruflutninganna. Að vísu álít ég, að það skipti miklu fyrir okkur að hafa menningarsamband við Ameríku, en eins og síðasti ræðumaður tók fram, þá álít ég okkar fjárhag svo komið nú, að ekki væri ráðlegt að leggja út í byggingu þessa skips, ef ekki væri slíkt hörmungarástand hjá okkur með markaði fyrir fiskinn og sú von, að úr því mætti bæta að nokkru með slíku skipi. Hæstv. ráðh. sagði, að hann teldi sig og stj. ekki bundna, þó að þessi till. yrði samþ. til að fara þá leið, sem hún gerir ráð fyrir. Ég skal ekki segja neitt um það, en eins og málið liggur fyrir, þá held ég, að það sé í raun og veru ekki nema um 2 leiðir að ræða. Eimskipafélagið hefir sjálft samþ. 2 möguleika, annaðhvort að byggja stórt farþegaskip eða flutningaskip nokkru minna. Ég held, að engum í stjórn Eimskipafél. hafi dottið í hug, að möguleiki væri fyrir að byggja bæði skipin. Þessi till. gæti því haft nokkra þýðingu, ef stjórn Eimskipafél. hætti við að byggja stærra skipið og tæki það ráð að byggja heldur minna vöruflutningaskip. Mitt álit er það, að ef þessi till. verður samþ., þá sé hún bindandi fyrir ríkisstj. Ég álít, að Alþ. eigi að ráða því, hvort félagið ræðst í að byggja minna eða stærra skipið. Ég álít, að ef till. hv. þm. A.-Húnv. yrði samþ., þá væri það til að ýta undir þann möguleika, að stj. tæki sér vald til að semja um þetta upp á eindæmi. Ég vænti þess vegna, að till. hans verði felld. Ég vil beinlínis undirstrika það, að atkvgr. um þetta mál sé í alvöru. Og ég lít svo á. að till. sé bindandi á þann hátt, að ef hún verður samþ., þá sé ekki heimild fyrir stj. til að semja um styrk til annars skips. Einnig að það skilyrði verði sett fyrir styrknum, að skipið sé notað til Ameríkuferða. Að öðrum kosti álit ég, að grundvöllurinn fyrir stj. til að veita styrkinn sé fallinn.