26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (3450)
92. mál, vöruflutningaskip til Ameríkuferða
*Sigurður Kristjánsson:
Ég held, að það sé fágætt, að Alþingi veiti mönnum eða stofnunum fé án þess að um það sé beðið. Nú er það vitanlegt, að Eimskipafél. hefir ákveðið að láta byggja mjög fullkomið skip og hefir leitað aðstoðar hæstv. stj. til þess. Það er líka vitanlegt, að þessu skipi gæti félagið beint til siglinga hvert sem því sýndist, þó að það væri í upphafi miðað við þær siglingaleiðir, sem nú eru farnar. Mér er að vísu ekki kunnugt um, hvað farið hefir milli félagsins og hæstv. ríkisstj., en ég þykist þess fullviss. að stj. félagsins hafi hagað máli sínu eins og vera her og talað um það við hæstv. ríkisstj., hverjir möguleikar myndu á því, að félagið gæti byggt skip til fullnægingar núverandi flutningaþörf á farmi og fólki.
Nú kemur fram þessi till. hv. fjvn. um að veita Eimskipafél. styrk til að byggja skip til allt annarrar starfrækslu en félagið hafði sjálft ákveðið að hefja. Það fylgir engin grg. um það, að minnzt hafi verið á þetta við félagið. Ég vil því spyrja hv. flm. till., hvort þeir hafi rætt þetta við stj. félagsins og hvort þeir byggi till. sína á ósk eða ákvörðun félagsins um að byggja skip í þessum tilgangi. Ef svo er ekki þá er þessi till. alveg merkilegt fyrirbæri á Alþingi.
Ég sagði áðan, að ég myndi greiða atkv. með því að vísa málinu til stj. Ég vildi þá ekki rökstyðja afstöðu mína með því, að ég áliti ekki að málið væri rétt upp tekið. En ég heyrði ekki af ræðu hv. flm. eitt orð, er gæfi til kynna. að málið hefði verið tekið upp í samráði við Eimskipafélagið. Ég held, að það sé því ekki fjarri lagi, þó að ég álykti, að hv. fjvn. hafi látið sér lást að undirbyggja flutning málsins á sjálfsagðasta hátt, með því að leita um það samkomulags við Eimskipafélagið. Og ég tel, að hv. Alþingi hafi fulla ástæðu til að biðja hv. fjvn. að fresta sínu máli þar til hún getur sýnt, að hún flytji það í samráði við Eimskipafélagið.