26.04.1939
Sameinað þing: 11. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (3456)

92. mál, vöruflutningaskip til Ameríkuferða

Sigurður Kristjánsson:

Ég er að sönnu með því, að ríkið styrki á allan hátt Eimskipafélagið til að halda uppi siglingum milli Íslands og annarra landa. En ég álít, að þessi till. sé sett til höfuðs ákvörðun Eimskipafélagsins um að byggja allt annað skip en hér er gert ráð fyrir. Þess vegna segi ég nei.