06.12.1939
Neðri deild: 76. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (3588)

142. mál, ríkisreikningurinn 1937

*Jón Pálmason:

Það verður líklega svo að vera, sem hæstv. forseti hefir stungið upp á, og verður það vist að skeika að sköpuðu, hvernig þær umr. falla. En þannig hefir verið tekið á þessu máli af meiri hl. fjhn., að það verður ekki af minni hálfu látið fara umræðulaust í gegnum þær umr., sem hér liggja fyrir í dag.

Ég mun hafa sagt það við hæstv. forseta í gær, að ég teldi sjálfsagt og eðlilegt, að þessar umr. færu fram samhliða. Að öðru leyti verður það að ráðast, hvernig fer með þessar umr.