04.01.1940
Sameinað þing: 26. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í D-deild Alþingistíðinda. (3644)

136. mál, fasteignaveðslán veðdeildar Landsbanka Íslands

Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það virðist nú a. m. k. brugðið til beggja vona um það. hvort tími vinnst til að afgreiða þessa till. á þessu þingi. Fari svo, að það takist ekki tímans vegna, mun ég samt sem áður athuga málið eins og það hefði orðið samþ. og reyna að komast til botns í því, hvort eðlilegt sé að breyta þarna til frá því, sem verið hefir.