03.01.1940
Sameinað þing: 25. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í D-deild Alþingistíðinda. (3652)

160. mál, síldarverðsuppbót

Ísleifur Högnason:

Það er nú liðinn hálfur mánuður síðan ég bar hér fram till. um verðuppbót á síld til útvegsmanna og sjómanna. Hún hefir ekki enn verið tekin á dagskrá. Vil ég nú gera þá kröfu, að þetta mál verði nú tekið á dagskrá sem fyrst.