17.04.1939
Efri deild: 41. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (533)
42. mál, útsvör
*Erlendur Þorsteinsson:
Ég skal ekki fara út í almennar deilur við hv. 2. þm. S.-M. um það, hvar sé bezt að leggja upp síld. Það er viðurkennt, hvar það er. Ég ætla heldur ekki að deila við hann um viðhald á götunum á Siglufirði. Ég ætla bara að benda honum á, að hafnargjöldin renna ekki til viðhalds á götum. Annars eru skipagjöldin á Siglufirði lægri en víða annarstaðar. Þetta getur hv. þm. sjálfur kynnt sér. Hv. þm. talaði um það, að allshn. gæti ekkert ábyrgzt um það, sem stæði í grg. Mér skildist helzt, að hv. þm. héldi því fram, að grg. væri frv. óviðkomandi. Mér finnst þetta harla einkennilegur skilningur hjá hv. þm. En ég verð að segja það, að ef það kæmi skýrt í ljós, sem fram kemur í grg., að þetta væri skilningur þeirrar n., sem frv. hefir samið, og allshn., þá væri miklu meiri ástæða til að ganga inn á að gera þessa breyt.
Ég mun fylgja þeirri till., sem fram er komin um að vísa málinu til stj. Ég tel fulla þörf á að endurskoða útsvarslögin í heild, et ske kynni, að vera myndi hægt að fá hv. Alþ. til að bæta það ranglæti, sem framið var með breyt. 1926.