20.02.1939
Neðri deild: 4. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (62)
8. mál, námulög
Atvmrh. (Skúli Guðmundsson):
Þetta frv. er um breyt. á og viðauka við námul. frá 1909. En bráðabirgðal. um þetta efni voru út gefin 2. sept. síðastl., og er með þessu frv. óskað staðfestingar hæstv. A1þ. á þeim l. L. þessi frá 1909 voru að ýmsu leyti orðin úrelt og ófullnægjandi, sérstaklega að því er snertir málmgröft og málmgraftarleyfi og ráðstafanir á námuréttindum. Og í frv. þessu er m. a. fram tekið, að málmgraftarbréf, sem lögreglustjórar gefi út, þurfi að vera staðfest af atvinnumálaráðuneytinu til þess að öðlast gildi.
Ég vil leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og allshn.