25.04.1939
Efri deild: 51. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (667)

89. mál, verðlag á vörum

*Magnús Jónsson:

Ég skal bara taka það fram í sambandi við ummæli hæstv. ráðh., að það, að ég lagði áherzlu á. að þetta mál færi til n., var ekki af því, að í því væri neitt athugavert, og get ég fyrir mitt leyti sparað frekari ræðuhöld um það. Ég vildi bara aðeins skjóta því til hæstv. ráðh., hvort ekki myndi vera fleiri atriði í l., sem þyrfti að breyta, enda þótt tími mundi ekki vera til þess nú að sinni.